Sólkerfið er hverfið okkar í geimnum. Í miðju þess er stjarna og um hana ganga átta reikistjörnurnar og tunglin þeirra. Allir hnettir, stórir sem smáir, á sporbaug umhverfis sólina eru hluti af sólkerfinu okkar.
Lesa meiraÍ miðju okkar sólkerfis er Sólin. Hún veitir okkur birtu og yl svo án hennar værum við ekki til. Úr hverju er sólin? Hvað er hún langt í burtu? Af hverju skín hún og hættir hún einhvern tímann að skína?
Lesa meiraMerkúríus er innsta og minnsta reikistjarnan í sólkerfinu okkar. Hann þeysist um himininn og hlaut því nafn sendiboða guðanna. Merkúríus er gígóttur og mjög heitur.
Í 108 milljón km fjarlægð frá sólinni er Venus. Hún er sveipuð þykkri skýjaslæðu sem endurvarpar svo miklu ljósi að frá Jörðu séð er hún jafnan bjartasta stjarnan á himinhvolfinu.
Lesa meiraÍ 150 milljón km fjarlægð frá sólinni er Jörðin. Utan úr geimnum er þessi reikistjarna hvít, græn og brún en umfram allt blá. Blái hnötturinn er enda 70% höf!
Lesa meiraTunglið er eini fylgihnöttur Jarðar. Það snýst um Jörðina einu sinni í mánuði og breytir um ásýnd nótt eftir nótt. Tunglið er gígótt og gamalt, afsprengi mestu hamfara sem orðið hafa á Jörðinni.
Fimm sinnum lengra frá sólinni en Jörðin er Júpíter. Hann er æðstur reikistjarnanna, hefur flest tungl og litríka storma sem hafa geysað um aldir. Hann varð næstum því stjarna!
Lesa meiraÍ níu sinnum meiri fjarlægð frá sólinni en Jörðin er sjötta reikistjarna sólkerfisins, Satúrnus. Hann er gulleitur og umvafinn glæsilegum hringum og forvitnilegum tunglum.
Lesa meiraÚranus er fölblá og fremur sviplaus reikistjarna, sú þriðja stærsta í sólkerfinu. Hann reikar um sólina einu sinni á mannsævi, næstum 20 sinnum fjær sólu en Jörðin.
Lesa meiraÞrjátíu sinnum fjær sólinni en Jörðin siglir útvörður reikistjarnanna löturhægt í kringum sólina. Reikistjarnan bláa ber nafn sjávarguðsins Neptúnusar sem hafði örlög sæferanda í hendi sér.
Lesa meiraÍ bókinni Hamfarir er fjallað um nokkra glötuðust atburðina sem orðið hafa í sögu Jarðar. Hvað gerðist þegar risaeðlurnar dóu út? Hvernig varð tunglið til? Árekstrar, snjóboltajörð og risaeldgos
Lesa meiraSólkerfið er léttlestrarbók fyrir krakka úr nýjum bókaflokki um náttúruna, vísindi og tækni. Bókin hentar öllum þeim sem eru að læra að lesa og auðvitað þeim foreldrum sem vilja lesa eitthvað fróðlegt og skemmtilegt með börnunum sínum.
Lesa meiraStjörnuskoðun fyrir alla fjölskylduna fjallar um undrin sem sjá má á næturhimninum, frá sólsetri til sólarupprásar.
Lesa meira